Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 308 — 261. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um vinnu til úrbóta á lagaumhverfi,
reglum og framkvæmd nauðungarvistunar.
Frá Elínu Hirst.
Hvernig miðar vinnu til úrbóta á lagaumhverfi, reglum og framkvæmd nauðungarvistunar samkvæmt lögræðislögum sem nú fer fram í ráðuneytinu?