Ferill 394. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 543  —  394. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um stöðu friðlýsingar
á svæðum og virkjunarkostum í verndarflokki.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Hver er staðan á friðlýsingu svæða og virkjunarkosta í verndarflokki í samþykktri áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða? Óskað er eftir sundurgreindu yfirliti yfir stöðu friðlýsingar út frá hverjum möguleika fyrir sig. Einnig er óskað eftir tímaáætlun um friðlýsingu hvers svæðis fyrir sig.


Skriflegt svar óskast.