Ferill 473. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 799 — 473. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um Íbúðalánasjóð og Leigufélagið Klett.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
1. Hve margar íbúðir eru í eigu Íbúðalánasjóðs og Leigufélagsins Kletts, sundurliðað eftir landsvæðum?
2. Hve margar af íbúðunum eru í söluferli og hve margar í útleigu, sundurliðað eftir landsvæðum?
3. Er ráðgert að fleiri íbúðir verði færðar yfir í Leigufélagið Klett?
4. Hefur verið mótuð stefna um eignarhald og fjármögnun Leigufélagsins Kletts?
Skriflegt svar óskast.