Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 836 — 484. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við framkvæmd og kynningu
á skuldaniðurfærslu verðtryggðra fasteignaveðlána.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
1. Hver er áætlaður kostnaður samtals við framkvæmd og kynningu á skuldaniðurfærslu verðtryggðra fasteignaveðlána? Óskað er eftir sundurliðun á öllum kostnaði við skuldaniðurfærsluna sem ekki er veitt til framteljenda sjálfra.
2. Hversu stór hluti þessa kostnaðar er vegna kynningar og almannatengsla í tengslum við niðurfærsluna?
Skriflegt svar óskast.