Ferill 523. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 902  —  523. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um eftirlit með vistráðningu.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hvernig er eftirliti háttað með vistráðningu (au pair), bæði með þeim sem fara utan og þeim sem ráða sig hingað?
     2.      Telur ráðherra að kerfið og núverandi eftirlit komi í veg fyrir þrælkun, misnotkun og mansal hérlendis?