Ferill 805. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1472 — 805. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um vímu- og fíkniefnabrot
á þjóðhátíð í Eyjum, Sónar og Secret Solstice.
Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.
Hver var fjöldi vímu- og fíkniefnabrota árið 2014 á þjóðhátíð í Eyjum, Sónar og Secret Solstice og:
a. hversu mikið magn vímu- og fíkniefna var gert upptækt,
b. hversu margir greiddu sektir,
c. hversu oft leiddi brot til skráningar í sakaskrá,
d. hversu mörg mál þurfti að fella niður?
Svar óskast sundurliðað eftir hátíðum og einnig eftir neyslubrotum og sölubrotum, þ.e. hvort ætla mátti að vímu- og fíkniefnin væru til einkaneyslu eða til sölu.
Skriflegt svar óskast.