Ferill 154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 154  —  154. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um niðurfellingu vega af vegaskrá.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hversu margir vegir hafa verið felldir af vegaskrá á tímabilinu 2004–2014? Hvað heita þessir vegir, hvert er veganúmer þeirra og lengd? Hvernig skiptast þeir milli sveitarfélaga og kjördæma?
     2.      Hvaða reglur gilda um niðurfellingu vega af vegaskrá og hver er aðkoma skipulagsyfirvalda að þeim ákvörðunum?
     3.      Hverjir hafa umsagnarrétt varðandi niðurfellingu vega af vegaskrá?
     4.      Hvað breytist varðandi umsjón vega þegar þeir eru felldir af vegaskrá?
     5.      Hvaða tilgangi þjónar að fella vegi af vegaskrá?


Skriflegt svar óskast.