Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 569, 145. löggjafarþing 200. mál: sameining Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 113 10. desember 2015.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
III. KAFLI
Breyting á búnaðarlögum, nr. 70/1998.
IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 58/2006, um fiskrækt.
V. KAFLI
Breyting á lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.
VI. KAFLI
Breyting á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði.
VII. KAFLI
Breyting á lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála.
IX. KAFLI
Breyting á lögum nr. 55/2012, um umhverfisábyrgð.
X. KAFLI
Breyting á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd.
XI. KAFLI
Gildistaka.
Þingskjal 569, 145. löggjafarþing 200. mál: sameining Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 113 10. desember 2015.
Lög um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar.
1. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnunar“ í 2. og 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnunar.2. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnunar“ í 4. mgr. 5. gr. og 3. mgr. 6. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnunar.3. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnun“ í 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnun.4. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnunar“ í 2. mgr. 4. gr., 6. gr. og 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnunar.5. gr.
2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar fimm manna fisksjúkdómanefnd: einn samkvæmt tilnefningu Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, tvo samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunar og skal annar vera sérfróður um ferskvatnsfiska en hinn um sjávardýr og einn samkvæmt tilnefningu Fiskistofu og yfirdýralækni, sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar.6. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnun“ í 1. mgr. 11. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnun.7. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnunar“ í 2. mgr. 11. gr., 1. mgr. 16. gr., tvívegis í 1. mgr. og í 4. mgr. 17. gr., 1. og 3. mgr. 18. gr., 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 20. gr., 2. mgr. 21. gr., 1. og 2. mgr. 24. gr., 25. gr., 3. mgr. 27. gr., 3., 5. og 6. mgr. 28. gr., 2. mgr. 29. gr., 3. mgr. 30. gr., 2. mgr. 32. gr. og 1. mgr. 34. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnunar; og í stað orðsins „Veiðimálastofnun“ í 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnun.8. gr.
Orðið „Veiðimálastofnunar“ í 3. mgr. 4. gr., 5. gr., 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 7. gr., orðin „Veiðimálastofnunar og“ í 1. mgr. 12. gr. og orðin „eða Veiðimálastofnunar“ í 1. mgr. 19. gr. laganna falla brott.9. gr.
Orðið „Veiðimálastofnun“ í 2. mgr. 9. gr. og 1. og 2. mgr. 10. gr. laganna fellur brott.10. gr.
Í stað orðsins „Veiðimálastofnunar“ í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur: Hafrannsóknastofnunar.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 15. gr. laganna:- Í stað orðsins „átta“ í 2. málsl. kemur: sjö.
- Orðið „Veiðimálastofnun“ í 3. málsl. fellur brott.
12. gr.
2. málsl. 4. mgr. 63. gr. laganna orðast svo: Náttúrufræðistofnun Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun tilnefna einn fulltrúa hver og Skógrækt ríkisins og Landgræðsla ríkisins tilnefna sameiginlega einn fulltrúa.13. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2016.Samþykkt á Alþingi 2. desember 2015.