Þingskjal 610, 145. löggjafarþing 329. mál: mannréttindasáttmáli Evrópu (15. samningsviðauki).
Lög nr. 118 18. desember 2015.
Lög um breytingu á lögum um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, með síðari breytingum (15. samningsviðauki).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Samnings frá 4. nóvember 1950 um verndun mannréttinda og mannfrelsis, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 11 frá 11. maí 1994 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis varðandi endurskipulagningu á eftirlitskerfi samningsins, ásamt viðauka, með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 14 frá 13. maí 2004 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis um breytingu á eftirlitskerfi samningsins og með áorðnum breytingum samkvæmt samningsviðauka nr. 15 frá 24. júní 2013 um breytingu á samningi um verndun mannréttinda og mannfrelsis.
- 2. mgr. orðast svo:
2. gr.
Fylgiskjal með lögunum, sbr. b-lið 1. gr., orðast eins og greinir í fylgiskjali með lögum þessum.3. gr.
Ákvæði laga þessara taka gildi um leið og samningsviðauki nr. 15 um breytingu á samningi um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950 öðlast gildi að því er Ísland varðar.Fylgiskjal.
hafa í huga hina almennu mannréttindayfirlýsingu, sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti hinn 10. desember 1948;
hafa í huga, að yfirlýsing þessi hefur það markmið að tryggja almenna og raunhæfa viðurkenningu og vernd þeirra réttinda, sem þar er lýst;
hafa í huga, að markmið Evrópuráðs er að koma á nánari einingu aðildarríkjanna og að ein af leiðunum að því marki er sú, að mannréttindi og mannfrelsi séu í heiðri höfð og efld;
lýsa á ný eindreginni trú sinni á það mannfrelsi, sem er undirstaða réttlætis og friðar í heiminum og best er tryggt, annars vegar með virku, lýðræðislegu stjórnarfari og, hins vegar, almennum skilningi og varðveislu þeirra mannréttinda, sem eru grundvöllur frelsisins;
eru staðráðnar í því að stíga fyrstu skrefin að því marki að tryggja sameiginlega nokkur þeirra réttinda, sem greind eru í hinni almennu mannréttindayfirlýsingu, enda eru þær stjórnir Evrópuríkja, sem sama sinnis eru og eiga sameiginlega arfleifð stjórnmálahefða, hugsjóna, frelsis og réttarríkis;
staðfesta að samningsaðilarnir hafa í samræmi við nálægðarregluna þá frumskyldu að tryggja þau réttindi og það frelsi sem eru skilgreind í þessum sáttmála og samningsviðaukum við hann, og hafa við það svigrúm til mats með fyrirvara um eftirlitslögsögu Mannréttindadómstóls Evrópu sem komið er á fót með þessum sáttmála;
hafa orðið ásáttar um það sem hér fer á eftir:
1. gr.
2. gr.
2. Þótt mannsbani hljótist af valdbeitingu skal það ekki talið brjóta í bága við þessa grein ef valdbeitingin er ekki meiri en ýtrasta nauðsyn krefur:
- til að verja menn gegn ólögmætu ofbeldi;
- til að framkvæma lögmæta handtöku eða til að koma í veg fyrir flótta manns sem er í lögmætri gæslu;
- vegna löglegra aðgerða sem miða að því að bæla niður uppþot eða uppreisn.
3. gr.
4. gr.
2. Eigi skal þess krafist af nokkrum manni að hann vinni þvingunar- eða nauðungarvinnu.
3. Þvingunar- eða nauðungarvinna í merkingu þessarar greinar skal eigi taka til:
- vinnu sem krafist er í samræmi við almennar reglur um tilhögun gæslu sem kveðið er á um í 5. gr. samnings þessa eða meðan á skilyrtri lausn úr slíkri gæslu stendur;
- herþjónustu eða þjónustu sem krafist er í hennar stað af mönnum sem synja herþjónustu samvisku sinnar vegna og búa við lög sem heimila slíka synjun;
- þjónustu vegna hættu- eða neyðarástands sem ógnar lífi eða velferð almennings;
- vinnu eða þjónustu sem er þáttur í venjulegum borgaraskyldum.
5. gr.
- lögleg gæsla manns sem dæmdur hefur verið sekur af þar til bærum dómstóli;
- lögleg handtaka eða gæsla manns fyrir að óhlýðnast lögmætri skipun dómstóls eða til að tryggja efndir lögmæltrar skyldu;
- lögleg handtaka eða gæsla manns sem efnt er til í því skyni að færa hann fyrir réttan handhafa opinbers valds, enda hvíli á honum rökstuddur grunur um afbrot eða með rökum sé talið nauðsynlegt að koma í veg fyrir að hann fremji afbrot eða komist undan að svo búnu;
- gæsla ósjálfráða manns samkvæmt löglegum úrskurði vegna eftirlits með uppeldi hans eða lögmætrar gæslu í því skyni að færa hann fyrir réttan handhafa opinbers valds;
- lögleg gæsla manns til að koma í veg fyrir að smitandi sjúkdómur breiðist út eða manns sem er andlega vanheill, áfengissjúklingur, eiturlyfjasjúklingur eða umrenningur;
- lögleg handtaka eða gæsla manns til að koma í veg fyrir að hann komist ólöglega inn í land eða gæsla manns sem vísa á úr landi eða framselja.
2. Hver sá maður, sem tekinn er höndum, skal án tafar fá vitneskju, á máli sem hann skilur, um ástæðurnar fyrir handtökunni og um sakir þær sem hann er borinn.
3. Hvern þann mann, sem tekinn er höndum eða settur í varðhald skv. c-lið 1. mgr. þessarar greinar, skal án tafar færa fyrir dómara eða annan embættismann sem að lögum hefur heimild til að fara með dómsvald, og skal hann eiga kröfu til að mál hans verði tekið fyrir í dómi innan hæfilegs tíma eða hann verði látinn laus þar til dómsmeðferð hefst. Gera má það að skilyrði fyrir lausn manns úr gæslu að trygging sé sett fyrir því að hann komi fyrir dóm.
4. Hverjum þeim sem handtekinn er eða settur í gæslu skal rétt að bera lögmæti frelsisskerðingarinnar undir dómstól er úrskurði um hana með skjótum hætti og fyrirskipi að hann skuli látinn laus ef ólögmæt reynist.
5. Hver sá sem tekinn hefur verið höndum eða settur í gæslu gagnstætt ákvæðum þessarar greinar skal eiga bótarétt sem unnt sé að koma fram.
6. gr.
2. Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð að lögum.
3. Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal eigi njóta minni réttar en hér greinir:
- Hann fái án tafar, á máli sem hann skilur, vitneskju í smáatriðum um eðli og orsök þeirrar ákæru sem hann sætir.
- Hann fái nægan tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína.
- Hann fái að halda uppi vörnum sjálfur eða með aðstoð verjanda að eigin vali. Hafi hann ekki nóg fé til að greiða lögfræðiaðstoð skal hann fá hana ókeypis ef það er nauðsynlegt vegna réttvísinnar.
- Hann fái að spyrja eða láta spyrja vitni sem leidd eru gegn honum. Séð skal um að vitni, sem bera honum í vil, komi fyrir dóm og séu spurð á sama hátt og þau vitni sem leidd eru gegn honum.
- Hann fái ókeypis aðstoð túlks ef hann skilur hvorki né talar mál það sem notað er fyrir dómi.
7. gr.
2. Ákvæði þessarar greinar skulu eigi torvelda réttarhöld yfir nokkrum manni eða refsingu hans fyrir hvern þann verknað, eða aðgerðaleysi, refsiverðan samkvæmt almennum ákvæðum laga, viðurkenndum af siðmenntuðum þjóðum þá framinn var.
8. gr.
2. Opinber stjórnvöld skulu eigi ganga á rétt þennan nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra.
9. gr.
2. Frelsi manna til að rækja trú sína eða sannfæringu skal einungis háð þeim takmörkunum, sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna almannaheilla, til verndar allsherjarreglu, heilsu manna eða siðgæði eða rétti og frelsi.
10. gr.
2. Þar sem af réttindum þessum leiðir skyldur og ábyrgð er heimilt að þau séu háð þeim formsreglum, skilyrðum, takmörkunum eða viðurlögum sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, landvarna eða almannaheilla, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu eða siðgæði manna, mannorði eða réttindum og til þess að koma í veg fyrir uppljóstran trúnaðarmála eða til þess að tryggja vald og óhlutdrægni dómstóla.
11. gr.
2. Eigi skal réttur þessi háður öðrum takmörkunum en þeim sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis eða almannaheilla, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða réttindum og frelsi. Ákvæði þessarar greinar skulu eigi vera því til fyrirstöðu að löglegar takmarkanir séu settar við því að liðsmenn hers og lögreglu eða stjórnarstarfsmenn beiti þessum rétti.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
2. Ákvæði þetta skal þó í engu rýra gildi 2. gr., nema þegar mannslát verða vegna löglegra hernaðaraðgerða, né heldur gildi 3. gr., 4. gr. (1. mgr.) og 7. gr.
3. Hver sá samningsaðili, sem neytir þessa réttar til undansláttar, skal láta aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs í té fulla vitneskju um þær ráðstafanir sem tekið hefur verið til svo og ástæður þeirra. Einnig skal hann tilkynna aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs um það þegar beitingu slíkra ráðstafana linnir og ákvæðum samningsins er á ný framfylgt að fullu.
16. gr.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
20. gr.
21. gr.
2. Umsækjendur skulu vera yngri en 65 ára daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22. gr.
3. Dómararnir skulu skipa sæti sitt sem einstaklingar.
4. Meðan kjörtímabil þeirra varir skulu dómararnir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem er ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Dómstóllinn skal skera úr um öll vafaatriði varðandi framkvæmd þessarar málsgreinar.
22. gr.
23. gr.
2. Dómarar skulu halda sæti sínu þar til aðrir koma í þeirra stað. Þeir skulu samt halda áfram að starfa að þeim málum sem þeir voru teknir til við.
3. Því aðeins verður dómara vikið úr starfi að hinir dómararnir ákveði með tveimur þriðju hlutum atkvæða að hann fullnægi ekki lengur þeim skilyrðum sem krafist er.
24. gr.
2. Skýrslugerðarmenn, sem starfa undir stjórn forseta dómstólsins, skulu vera dómstólnum til aðstoðar þegar einn dómari situr í dóminum. Þeir skulu vera hluti af starfsliði skrifstofu dómstólsins.
25. gr.
- kjósa forseta sinn og einn eða tvo varaforseta til þriggja ára; þá má endurkjósa;
- skipa deildir til ákveðins tíma;
- kjósa forseta deilda dómstólsins; þá má endurkjósa;
- samþykkja starfsreglur dómstólsins;
- kjósa ritara og einn eða fleiri aðstoðarritara;
- leggja fram beiðni skv. 2. mgr. 26. gr.
26. gr.
2. Ráðherranefndin getur, að beiðni fullskipaðs dómstóls, með samhljóða ákvörðun og til ákveðins tíma, fækkað dómurum í deildum í fimm.
3. Þegar dómari situr einn í dóminum skal hann ekki skoða kærur á hendur þeim samningsaðila sem hann er kosinn fyrir.
4. Sjálfskipaður í deildina og yfirdeildina er dómari sá sem er kosinn af hálfu þess samningsaðila sem er málsaðili. Fyrirfinnist enginn slíkur eða geti sá dómari ekki tekið þátt í meðferð málsins tilnefnir forseti dómstólsins dómara af lista sem fyrrnefndur samningsaðili hefur þegar lagt fram.
5. Yfirdeildina skulu einnig skipa forseti og varaforsetar dómstólsins, forsetar deilda og aðrir dómarar sem valdir eru samkvæmt starfsreglum dómstólsins. Þegar máli er vísað til yfirdeildarinnar í samræmi við ákvæði 43. gr. skal enginn þeirra dómara, sem áttu sæti í deildinni sem kvað upp dóm í málinu, eiga sæti í yfirdeildinni, að undanskildum þó forseta deildarinnar og dómara þeim sem átti sæti í deildinni af hálfu þess samningsaðila sem er málsaðili.
27. gr.
2. Ákvörðunin skal vera endanleg.
3. Lýsi dómari, sem situr einn í dóminum, ekki kæru ótæka eða felli hana ekki af málaskrá skal hann framsenda hana nefnd eða deild til frekari skoðunar.
28. gr.
- að lýsa hana ótæka eða fella af málaskrá sinni þegar unnt er að taka slíka ákvörðun án frekari skoðunar; eða
- að lýsa hana tæka og fella um leið dóm um efni hennar ef þegar hefur verið fjallað um úrlausnarefnið, sem málið snýst um og varðar túlkun eða beitingu ákvæða samningsins eða samningsviðauka við hann, í staðfestri dómaframkvæmd dómstólsins.
2. Ákvarðanir og dómar skv. 1. mgr. skulu vera endanlegir.
3. Eigi dómarinn, sem er kosinn af hálfu samningsaðilans sem er málsaðili, ekki sæti í nefndinni getur nefndin, á hvaða stigi málsmeðferðar sem er, boðið dómaranum að taka sæti eins nefndarmanna, að teknu tilliti til allra þátta sem máli skipta, m.a. þess hvort fyrrnefndur samningsaðili hafi andæft því að málsmeðferðinni skv. b-lið 1. mgr. sé beitt.
29. gr.
2. Deild skal kveða á um hvort milliríkjakærur skv. 33. gr. séu tækar og um efnishlið þeirra. Ákvörðun um hvort kæra sé tæk skal tekin sérstaklega nema dómstóllinn ákveði annað í undantekningartilvikum.
30. gr.
31. gr.
- úrskurða um kærur sem bornar eru fram skv. 33. gr. eða 34. gr. þegar deild hefur eftirlátið lögsögu skv. 30. gr. eða þegar máli hefur verið vísað til hennar skv. 43. gr.;
- úrskurða í málum sem ráðherranefndin vísar til dómstólsins í samræmi við 4. mgr. 46. gr.; og
- fjalla um beiðnir um ráðgefandi álit sem bornar eru fram skv. 47. gr.
32. gr.
2. Ef ágreiningur verður um lögsögu dómstólsins sker hann úr.
33. gr.
34. gr.
35. gr.
2. Dómstóllinn skal eigi taka til meðferðar kæru einstaklings sem lögð er fyrir hann skv. 34. gr. ef hún er:
- frá ónafngreindum aðila, eða
- efnislega sú sama og mál sem þegar hefur verið rannsakað af dómstólnum eða hefur verið lagt fyrir til rannsóknar eða úrskurðar á alþjóðavettvangi og felur ekki í sér neinar nýjar upplýsingar sem máli skipta.
3. Dómstóllinn skal lýsa ótæka hverja kæru einstaklings, sem er borin fram skv. 34. gr., telji hann:
- kæruna ósamrýmanlega ákvæðum samningsins eða samningsviðauka við hann, augljóslega illa grundaða eða fela í sér misnotkun á kærurétti einstaklinga; eða
- kæranda ekki hafa orðið fyrir umtalsverðu óhagræði, nema virðing fyrir mannréttindum, eins og þau eru skilgreind í samningnum og samningsviðaukum við hann, krefjist þess að efni kærunnar sé skoðað.
4. Dómstóllinn skal vísa frá hverri þeirri kæru sem hann telur ótæka samkvæmt þessari grein. Honum er heimilt að gera það á hvaða stigi málflutningsins sem er.
36. gr.
2. Í því skyni að tryggja rétta dómsniðurstöðu er forseta dómstólsins heimilt að bjóða sérhverjum samningsaðila sem ekki er aðili að málaferlunum eða manni sem málið varðar og ekki er kærandi að leggja fram skriflegar athugasemdir eða taka þátt í munnlegum málflutningi.
3. Mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins er heimilt að leggja fram skriflegar athugasemdir í öllum málum fyrir deild eða yfirdeildinni og taka þátt í réttarhöldum.
37. gr.
- kærandi hyggist ekki fylgja kæru sinni eftir, eða
- málinu hafi verið ráðið til lykta, eða
- af einhverri annarri ástæðu sem dómstóllinn sannreynir, sé ekki lengur réttlætanlegt að halda áfram að fjalla um kæruna.
Dómstóllinn skal þó halda áfram rannsókn kærunnar ef nauðsynlegt er til þess að mannréttindi þau sem skýrgreind eru í samningi þessum eða samningsviðaukum við hann séu virt.
2. Dómstóllinn getur ákveðið að taka kæru að nýju á málaskrá sína ef hann telur að aðstæður réttlæti það.
38. gr.
39. gr.
2. Málsmeðferð, sem fer fram skv. 1. mgr., skal háð trúnaðarkvöðum.
3. Ef sættir takast skal dómstóllinn fella málið af málaskrá sinni með ákvörðun sem skal vera stutt greinargerð um málsatvik og þá lausn sem náðist.
4. Ákvörðunin skal fengin ráðherranefndinni sem hefur umsjón með því að skilmálum sáttargerðarinnar sé fullnægt með þeim hætti sem fram kemur í ákvörðuninni.
40. gr.
2. Málsskjöl sem lögð eru fram hjá ritara skulu vera aðgengileg almenningi nema forseti dómstólsins ákveði annað.
41. gr.
42. gr.
43. gr.
2. Nefnd fimm dómara yfirdeildarinnar skal verða við beiðninni ef málið vekur alvarlega spurningu varðandi túlkun eða framkvæmd á samningnum og samningsviðaukum við hann eða alvarlegt deiluefni sem er almennt mikilvægt.
3. Samþykki nefndin beiðnina skal yfirdeildin ljúka málinu með dómi.
44. gr.
2. Dómur deildar verður endanlegur:
- þegar málsaðilar lýsa yfir að þeir muni ekki óska þess að málinu verði vísað til yfirdeildarinnar, eða
- þremur mánuðum frá dagsetningu dómsins ef ekki hefur verið óskað eftir að málinu sé vísað til yfirdeildarinnar, eða
- þegar nefnd yfirdeildarinnar vísar frá beiðni um málskot skv. 43. gr.
3. Endanlegur dómur skal birtur.
45. gr.
2. Ef dómarar verða ekki sammála um dóm sinn að öllu eða einhverju leyti skal hver dómari hafa rétt til að skila séráliti.
46. gr.
2. Endanlegur dómur dómstólsins skal fenginn ráðherranefndinni sem hefur umsjón með fullnustu hans.
3. Telji ráðherranefndin að erfiðleikar við túlkun endanlegs dóms torveldi umsjón með fullnustu hans getur hún vísað málinu til dómstólsins til að fá úr því skorið hvernig beri að túlka dóminn. Tvo þriðju hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem eiga rétt til setu í nefndinni þarf til að samþykkja ákvörðun um tilvísun.
4. Telji ráðherranefndin að samningsaðili neiti að hlíta endanlegum dómi í máli sem hann á aðild að getur hún, eftir að hafa afhent viðkomandi samningsaðila formlega tilkynningu þar um og með ákvörðun sem er samþykkt með tveimur þriðju hlutum atkvæða þeirra fulltrúa sem eiga rétt til setu í nefndinni, beint þeirri spurningu til dómstólsins hvort samningsaðilinn hafi brotið gegn skyldum sínum skv. 1. mgr.
5. Komist dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn ákvæðum 1. mgr. skal hann vísa málinu til ráðherranefndarinnar sem tekur til umfjöllunar til hvaða ráðstafana skuli grípa. Komist dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum 1. mgr. skal hann vísa málinu til ráðherranefndarinnar sem skal hætta skoðun málsins.
47. gr.
2. Eigi má í slíkum álitsgerðum fjalla um nokkurt atriði er varðar efni eða umfang réttinda þeirra eða mannfrelsis, er fjallað er um í I. kafla samningsins og samningsviðaukum við hann, né heldur um önnur atriði sem dómstóllinn eða ráðherranefndin kynni að þurfa að taka afstöðu til í framhaldi af málskotum er efnt kynni að verða til í samræmi við samninginn.
3. Til þess að ákvörðun ráðherranefndarinnar um að æskja álits dómstólsins nái fram að ganga þarf meiri hluta atkvæða fulltrúa þeirra er rétt eiga til setu í nefndinni.
48. gr.
49. gr.
2. Nú er álit eigi að öllu eða nokkru leyti einróma, og ber hverjum dómara þá réttur til að setja fram sérálit.
3. Áliti dómstólsins skal skilað til ráðherranefndarinnar.
50. gr.
51. gr.
52. gr.
53. gr.
54. gr.
55. gr.
56. gr.
2. Samningurinn skal gilda fyrir það eða þau landsvæði, sem greind eru í tilkynningu, að 30 dögum liðnum frá því að tilkynningin berst aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs.
3. Ákvæðum samnings þessa skal þó beitt á slíkum landsvæðum með fullri hliðsjón af því hversu háttar til á hverjum stað.
4. Hvert það ríki, sem gefið hefur yfirlýsingu í samræmi við 1. mgr. þessarar greinar, getur hvenær sem er síðar lýst því yfir vegna eins eða fleiri landsvæða þeirra, sem yfirlýsingin tekur til, að það fallist á að dómstóllinn sé bær um að taka við kærum frá einstaklingum, samtökum eða hópum einstaklinga skv. 34. gr. samnings þessa.
57. gr.
2. Sérhverjum fyrirvara samkvæmt þessari grein skal fylgja stutt greinargerð um þá löggjöf sem um er að ræða.
58. gr.
2. Slík uppsögn skal ekki leysa samningsaðila undan skyldum sínum samkvæmt samningi þessum hvað varðar verknað sem fara kann í bág við slíkar skuldbindingar og hann kann að hafa framið áður en uppsögnin tók gildi.
3. Hver sá samningsaðili, sem gengur úr Evrópuráðinu, skal slíta aðild sinni að samningi þessum með sömu skilmálum.
4. Samningi þessum má segja upp í samræmi við ákvæði málsgreinanna hér að ofan hvað varðar hvert það landsvæði sem lýst hefur verið yfir að hann taki til skv. 56. gr.
59. gr.
2. Evrópusambandinu er heimilt að gerast aðili að þessum samningi.
3. Samningur þessi skal taka gildi þegar tíu ríki hafa afhent fullgildingarskjöl sín.
4. Hvað varðar hvert það ríki, sem undirritað hefur samninginn og fullgildir hann eftir þetta, skal hann taka gildi daginn sem fullgildingarskjalið er afhent.
5. Aðalframkvæmdastjóri Evrópuráðs skal tilkynna öllum aðilum Evrópuráðs um gildistöku samningsins, nöfn þeirra ríkja sem hafa fullgilt hann og afhendingu allra fullgildingarskjala sem síðar kunna að berast.
Hafa þær því komið sér saman um það, sem hér segir:
1. gr.
Eigi skulu þó ákvæði undanfarandi málsgreinar á nokkurn hátt rýra réttindi ríkis til þess að fullnægja þeim lögum sem það telur nauðsynleg til þess að geta haft hönd í bagga um notkun eigna í samræmi við hag almennings eða til þess að tryggja greiðslu skatta eða annarra opinberra gjalda eða viðurlaga.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Hver samningsaðili, sem afhent hefur yfirlýsingu samkvæmt undanfarandi málsgrein, getur hvenær sem er afhent aðra yfirlýsingu þar sem breytt er ákvæðum fyrri yfirlýsinga eða tilkynnt er að ákvæði samningsviðauka þessa gildi ekki um tiltekið landsvæði.
Yfirlýsingu, sem gefin er í samræmi við grein þessa, skal skoða svo sem hún sé gerð í samræmi við 1. mgr. 56. gr. samningsins.
5. gr.
6. gr.
Afhenda skal fullgildingarskjölin aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs, og skal hann tilkynna öllum aðildarríkjum nöfn þeirra er fullgilt hafa.
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
1. gr.
2. gr.
2. Öllum ber réttur til brottfarar úr landi, einnig úr eigin landi.
3. Eigi má leggja nokkrar hömlur á vernd slíkra réttinda, umfram það sem lög standa til og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis eða almannaheilla, í þágu allsherjarreglu, til að firra glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra.
4. Réttindi þau, er greinir í 1. mgr., geta á tilteknum landsvæðum sætt takmörkunum, svo fremi að þeim sé beitt að lögum og þær séu réttlætanlegar vegna almennra hagsmuna í lýðræðislegu þjóðfélagi.
3. gr.
2. Eigi má banna nokkrum manni að koma til þess ríkis sem hann er þegn í.
4. gr.
5. gr.
2. Aðildarríki, sem afhent hefur yfirlýsingu samkvæmt næstu málsgrein á undan, getur hvenær sem er afhent aðra yfirlýsingu um breytingar á fyrri yfirlýsingu eða um uppsögn á gildi samningsviðauka þessa gagnvart einhverju landsvæði.
3. Yfirlýsing, sem fram er lögð samkvæmt þessari grein, telst vera gerð í samræmi við 1. mgr. 56. gr. samningsins.
4. Landsvæði hvers ríkis, sem þessi samningsviðauki nær til samkvæmt fullgildingu eða samþykki ríkis, og hvert landsvæði, sem hann nær til samkvæmt yfirlýsingu ríkis í samræmi við grein þessa, ber að skoða sem aðgreind landsvæði að því er varðar ákvæðin í 2. og 3. gr. um landsvæði ríkis.
5. Hvert það ríki sem gefið hefur yfirlýsingu í samræmi við 1. og 2. mgr. þessarar greinar getur hvenær sem er síðar lýst því yfir vegna eins eða fleiri landsvæða þeirra sem yfirlýsingin tekur til, að það fallist á að dómstóllinn sé bær um að taka við kærum frá einstaklingum, samtökum eða hópum einstaklinga skv. 34. gr. samningsins varðandi 1.–4. gr. þessa samningsviðauka, einni eða öllum.
6. gr.
7. gr.
2. Fullgildingarskjöl ber að afhenda aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs, og tilkynnir hann öllum aðildarríkjum um hver þeirra fullgilt hafi.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, ritað undir samningsviðauka þennan.
telja að þróun sú, sem orðið hefur í ýmsum aðildarríkjum Evrópuráðsins, lýsi almennri tilhneigingu í átt til afnáms dauðarefsingar,
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
2. Með yfirlýsingu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs getur sérhvert ríki hvenær sem er síðar látið samningsviðauka þennan ná til hvaða annars landsvæðis sem tilgreint er í yfirlýsingunni. Samningsviðaukinn tekur gildi gagnvart slíku landsvæði fyrsta dag næsta mánaðar eftir að aðalframkvæmdastjóra berst slík yfirlýsing.
3. Sérhverja yfirlýsingu, sem gefin er samkvæmt tveimur undanfarandi málsgreinum, má afturkalla fyrir hvert það landsvæði, sem þar er greint, með tilkynningu til aðalframkvæmdastjórans. Afturköllunin tekur gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að aðalframkvæmdastjóra berst slík tilkynning.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
2. Gagnvart aðildarríki, sem síðar samþykkir að vera bundið af samningsviðauka þessum, öðlast hann gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir afhendingu fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals.
9. gr.
- Sérhverja undirritun.
- Afhendingu sérhvers fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals.
- Sérhvern gildistökudag samningsviðauka þessa skv. 5. og 8. gr.
- Sérhvern gerning, tilkynningu eða orðsendingu varðandi samningsviðauka þennan.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, ritað undir samningsviðauka þennan.
og ákveðið hafa að gera frekari ráðstafanir til að tryggja sameiginlega framkvæmd tiltekinna réttinda og frelsis með tilstuðlan samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis sem undirritaður var í Róm 4. nóvember 1950 (hér á eftir nefndur „samningurinn“),
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
1. gr.
- að bera fram ástæður gegn brottvísun sinni,
- að fá mál sitt tekið upp að nýju, og
- að fá erindi sitt flutt í þessu skyni fyrir réttu stjórnvaldi eða manni eða mönnum sem það stjórnvald tilnefnir.
2. Heimilt er að vísa útlendingi brott áður en hann hefur neytt réttinda sinna skv. a-, b- og c-lið 1. mgr. þessarar greinar þegar slík brottvísun er nauðsynleg vegna allsherjarreglu eða á grundvelli þjóðaröryggis.
2. gr.
2. Réttur þessi getur verið háður undantekningum þegar um er að ræða minni háttar brot, eftir því sem fyrir er mælt í lögum, eða þegar fjallað var um mál viðkomandi manns á frumstigi af æðsta dómi, eða hann var sakfelldur eftir áfrýjun á sýknudómi.
3. gr.
4. gr.
2. Ákvæði undanfarandi málsgreinar skulu ekki vera því til fyrirstöðu að málið sé endurupptekið í samræmi við lög og sakamálaréttarfar viðkomandi ríkis ef fyrir hendi eru nýjar eða nýupplýstar staðreyndir, eða ef megingalli hefur verið á fyrri málsmeðferð sem gæti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
3. Óheimilt er að víkja frá þessari grein með skírskotun til 15. gr. samningsins.
5. gr.
6. gr.
2. Með yfirlýsingu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðs getur sérhvert ríki hvenær sem er síðar látið samningsviðauka þennan ná til hvaða annars landsvæðis sem tilgreint er í yfirlýsingunni. Samningsviðaukinn öðlast gildi gagnvart slíku landsvæði fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru tveir mánuðir frá því að aðalframkvæmdastjóra berst slík yfirlýsing.
3. Sérhverja yfirlýsingu, sem gefin er samkvæmt undanfarandi tveimur málsgreinum, má afturkalla eða breyta fyrir hvert það landsvæði sem þar er tilgreint með tilkynningu til aðalframkvæmdastjórans. Afturköllunin eða breytingin tekur gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru tveir mánuðir frá þeim degi er aðalframkvæmdastjóra berst slík tilkynning.
4. Yfirlýsing, sem gerð er samkvæmt þessari grein, skal talin gerð í samræmi við 1. mgr. 56. gr. samningsins.
5. Heimilt er að skoða landsvæði sérhvers ríkis, sem þessi samningsviðauki tekur til samkvæmt fullgildingu, viðurkenningu eða samþykki ríkisins, og hvert það landsvæði, sem þessi samningsviðauki tekur til samkvæmt yfirlýsingu ríkisins í samræmi við þessa grein, sem aðgreind landsvæði að því er varðar vísun til landsvæðis ríkis í 1. gr.
6. Hvert það ríki sem gefið hefur yfirlýsingu í samræmi við 1. og 2. mgr. þessarar greinar getur hvenær sem er síðar lýst því yfir vegna eins eða fleiri landsvæða þeirra sem yfirlýsingin tekur til að það fallist á að dómstóllinn sé bær um að taka við kærum frá einstaklingum, samtökum eða hópum einstaklinga skv. 34. gr. samningsins varðandi 1.–5. gr. þessa samningsviðauka.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
2. Gagnvart aðildarríki, sem síðar lýsir samþykki sínu við að vera bundið af samningsviðaukanum, skal hann öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru tveir mánuðir frá afhendingu fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals.
10. gr.
- Sérhverja undirritun.
- Afhendingu sérhvers fullgildingar-, viðurkenningar- eða samþykktarskjals.
- Sérhvern gildistökudag samningsviðauka þessa skv. 6. og 9. gr.
- Sérhvern gerning, tilkynningu eða yfirlýsingu varðandi samningsviðauka þennan.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, ritað undir samningsviðauka þennan.
eru sannfærð um að réttur allra manna til lífs sé ein af undirstöðunum í lýðræðisþjóðfélagi og að afnám dauðarefsinga sé grundvallaratriði í vernd þessa réttar og því að mannleg reisn hljóti fulla viðurkenningu sem óvefengjanlegur réttur allra manna,
vilja efla vernd réttarins til lífs sem tryggður er með samningnum um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sem undirritaður var í Róm 4. nóvember 1950 (hér á eftir nefndur „samningurinn“),
gera sér ljóst að í samningsviðauka nr. 6, varðandi afnám dauðarefsinga, við samninginn, sem undirritaður var í Strassborg 28. apríl 1983, er dauðarefsing fyrir verknaði, framda á stríðstímum eða þegar bráð stríðshætta vofir yfir, ekki útilokuð,
eru staðráðin í að taka skrefið til fulls í þá átt að afnema dauðarefsingar í öllum tilvikum,
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
2. Með yfirlýsingu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins getur sérhvert ríki hvenær sem er síðar látið samningsviðauka þennan ná til hvaða annars landsvæðis sem tilgreint er í yfirlýsingunni. Samningsviðaukinn öðlast gildi gagnvart slíku landsvæði fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru þrír mánuður frá því að aðalframkvæmdastjóra berst slík yfirlýsing.
3. Sérhverja yfirlýsingu, sem gefin er samkvæmt undanfarandi tveimur málsgreinum, má afturkalla eða breyta fyrir hvert það landsvæði sem þar er tilgreint með tilkynningu til aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Afturköllunin eða breytingin öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá þeim degi er aðalframkvæmdastjóra berst slík tilkynning.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
2. Gagnvart aðildarríki, sem síðar lýsir samþykki sínu við að vera bundið af samningsviðaukanum, skal hann öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðnir eru þrír mánuðir frá afhendingu fullgildingar-, staðfestingar- eða samþykktarskjals.
8. gr.
- Sérhverja undirritun.
- Afhendingu sérhvers fullgildingar-, staðfestingar- eða samþykktarskjals.
- Sérhvern gildistökudag samningsviðauka þessa skv. 4. og 7. gr.
- Sérhvern gerning, tilkynningu eða yfirlýsingu varðandi samningsviðauka þennan.
Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, ritað undir samningsviðauka þennan.
Samþykkt á Alþingi 8. desember 2015.