Ferill 553. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 927 — 553. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
frá Vigdísi Hauksdóttur um embættismenn.
1. Hver er heildarfjöldi embættismanna sem starfa hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og stofnunum þess?
Hjá ráðuneytinu starfa sex embættismenn og níu hjá stofnunum þess. Heildarfjöldinn er því fimmtán.
2. Skipan hve margra þeirra rennur út á þessu ári og skipan hve margra á ári hverju 2017–2020?
Á þessu ári verða lögð niður embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar og skipaður verður forstjóri nýrrar stofnunar.
Á árunum 2017–2020 rennur skipunartími embættismanna út eins og sjá má í eftirfarandi töflu:
2017 | 2018 | 2019 | 2020 | |
Fjöldi | 3 | 7 | 0 | 3 |
3. Hve margir embættismenn eru á þessu ári 60–64 ára, 65–66 ára og 67–69 ára og hve margir verða 70 ára á næsta ári?
Á þessu ári er aldursdreifing eftirfarandi:
60–64 ára eru þrír.
65–66 ára er enginn.
67–69 ára er enginn.
Enginn verður 70 ára á næsta ári.
4. Hve margir embættismenn starfa sem skrifstofustjórar innan ráðuneytisins án mannaforráða?
Enginn.