Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1035, 145. löggjafarþing 404. mál: uppbygging og rekstur fráveitna (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna).
Lög nr. 22 30. mars 2016.
Stjórn fráveitu er skylt að yfirtaka eina tengingu við fráveitu frá safnkerfi að lóðamörkum sveitarfélagsins að fenginni skriflegri beiðni frá eiganda. Aukatengingar tilheyra áfram viðkomandi fasteign.
Þingskjal 1035, 145. löggjafarþing 404. mál: uppbygging og rekstur fráveitna (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna).
Lög nr. 22 30. mars 2016.
Lög um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009 (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna).
1. gr.
Á undan 1. tölul. 3. gr. laganna kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Fasteign: Afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt, eins og fasteignin er nánar skilgreind í fasteignaskrá hverju sinni. Þá telst eignarhluti í fjöleignarhúsi vera sérstök fasteign.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Gjald vegna losunar kemur til viðbótar fráveitugjaldi skv. 1. mgr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- 2. og 3. málsl. 2. mgr. falla brott.
- Á eftir 2. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
- rúmmáls allra mannvirkja á fasteign eða
- flatarmáls allra mannvirkja á fasteign og/eða notkunar samkvæmt mæli.
Geti eigandi eða umráðamaður fasteignar sýnt fram á að tiltekið mannvirki á fasteign, sem sérstaklega er aðgreint í fasteignaskrá, geti ekki tengst fráveitu af landfræðilegum eða tæknilegum ástæðum eða vegna eðlis þess getur hann beint erindi til stjórnar fráveitu um að álagning fráveitugjalds taki mið af því. Þá skulu hlunnindi, ræktað land og önnur sérstök fasteignaréttindi sem skilgreind eru í fasteignaskrá sem hluti fasteignarinnar vera undanþegin við álagningu fráveitugjalds ef þau mynda umtalsverðan hluta af matsverði.
Í stað þess að miða við fasteignamat, sbr. 3. mgr., er heimilt að miða fráveitugjald við fast gjald á hverja fasteign fyrir sig, auk álags vegna annars eða hvors tveggja af eftirfarandi, en þó aldrei hærra en segir í 1. málsl. 3. mgr.:
4. gr.
2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum orðast svo:Stjórn fráveitu er skylt að yfirtaka eina tengingu við fráveitu frá safnkerfi að lóðamörkum sveitarfélagsins að fenginni skriflegri beiðni frá eiganda. Aukatengingar tilheyra áfram viðkomandi fasteign.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. mars 2016.