Ferill 53. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 55 — 53. mál.
Fyrirspurn
til forseta Alþingis um húsnæðis-, dvalar-
og ferðakostnað alþingismanna.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margir alþingismenn, flokkað eftir kjördæmum og mánuðum, fengu frá og með árinu 2013 mánaðarlega greiðslur samkvæmt:
a. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/1995,
b. 2. mgr. 6. gr. sömu laga,
c. 3. mgr. 6. gr. laganna?
Óskað er eftir að tekið verði tillit til þess hafi orðið slíkar breytingar að þingmaður flytjist á milli flokka á tímabilinu og einnig að sýnd verði skipting eftir kjörtímabilum.
2. Hvernig er „aðalheimili“ skilgreint skv. 6. gr. laga nr. 88/1995?
Skriflegt svar óskast.