Ferill 558. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 845 — 558. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um samkeppnisstöðu íslenskra iðnfyrirtækja.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
1. Hvaða áhrif mun afnám eða lækkun tolla 1. maí sl. af vörum sem innihalda landbúnaðarhráefni hafa á samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja? Óskað er eftir að reynt verði að flokka starfsemi fyrirtækja niður á helstu iðngreinar í svarinu.
2. Hvaða áhrif mun aðgerðin hafa á innkaupsverð á mjólkurdufti til innlendra iðnfyrirtækja og hver verður væntanlegur verðmunur á því og innkaupsverði erlendra keppinauta í ljósi hárra verndartolla hérlendis?
3. Hyggjast stjórnvöld, og þá hvernig, leiðrétta þennan mismun á innkaupsverði mjólkurdufts gagnvart íslenskum iðnfyrirtækjum?
4. Með hvaða hætti, almennum og sértækum, hyggjast stjórnvöld gera íslenskum framleiðendum kleift að nálgast hráefni á verði sem er samkeppnishæft við það sem erlendir keppinautar njóta?
Skriflegt svar óskast.