Ferill 593. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 948 — 593. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um svarta atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu.
Frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur.
Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að uppræta svarta atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu, m.a. tengda skammtímaleigu og erlendu vinnuafli?
Skriflegt svar óskast.