Ferill 773. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Nr. 30/149.
Þingskjal 1685 — 773. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins sem undirritaður var 3. október 2018 í Ilulissat á Grænlandi.
Samþykkt á Alþingi 3. júní 2019.