Ferill 784. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1800 — 784. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, með síðari breytingum (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi).
(Eftir 2. umræðu, 12. júní.)
1. gr.
a. Í stað orðsins „starfsemi“ kemur: veitingastarfsemi.
b. Í stað orðanna „sbr. 7., 12. og 17. gr.“ kemur: skv. 7. og 12. gr. eða leyfisskylda starfsemi skv. 17. gr. án leyfis.
2. gr.
a. Á eftir orðunum „þann sem rekur“ í 1. mgr. kemur: leyfisskylda gististarfsemi án tilskilins rekstrarleyfis, sbr. 7. gr.
b. Við 2. mgr. bætist: eða skilar ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns skv. 2. mgr. 13. gr.
c. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Við ákvörðun um stjórnvaldssekt vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi er sýslumanni heimilt að afla gagna með sjálfstæðri rannsókn og leita atbeina lögreglu við öflun slíkra gagna.
d. Við 3. mgr. bætist: svo sem umfangs, ætlaðs ávinnings, ítrekunaráhrifa og hvort um rekstrarleyfis- eða skráningarskylda starfsemi er að ræða. Litið er á hverja selda gistinótt umfram það sem heimilt er samkvæmt lögum þessum sem sjálfstætt brot.
e. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra er í reglugerð heimilt að kveða á um að einu sýslumannsembætti sé falið að taka ákvarðanir um stjórnvaldssektir vegna leyfisskyldrar gististarfsemi. Ákvörðun skal tekin að höfðu samráði við þann ráðherra sem fer með málefni sýslumanna.
3. gr.