Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 82 — 82. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um hlutafélög (aukinn aðgangur að ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá).
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Smári McCarthy, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Jón Steindór Valdimarsson.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Greinargerð.
Með frumvarpinu er lagt til að upplýsingar ársreikningaskrár og hluthafaskrár verði aðgengilegri fyrir almenning. Lagt er til að ekki skuli taka gjald fyrir rafræna uppflettingu í skrám þessum og að sömu upplýsingar skuli vera aðgengilegar þar og ef greitt væri fyrir eintak af gögnum úr skránni. Þessar upplýsingar geta ekki talist aðgengilegar almenningi miðað við núverandi löggjöf þar sem greiða þarf fyrir þær.
Frumvarp til laga sambærilegt þessu er varðaði aukinn aðgang að fyrirtækjaskrá var samþykkt á Alþingi á 146. löggjafarþingi og varð að lögum nr. 64/2017. Fólu lögin í sér að veita almenningi aðgang að fyrirtækjaskrá án gjaldtöku. Hér er lagt til að gögn sem tengjast þeim sem er að finna í fyrirtækjaskrá verði gerð aðgengileg á sama hátt.