Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 218 — 205. mál.
Fyrirspurn
til forseta Alþingis um utanlandsferðir á vegum Alþingis.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hversu margar utanlandsferðir fóru árin 2016–2019:
a. yfirstjórn,
b. almennir starfsmenn?
2. Voru ferðirnar kolefnisjafnaðar?
3. Er til fjarfundabúnaður á Alþingi?
4. Hversu margir fundir voru haldnir með fjarfundabúnaði árin 2016–2019 með aðilum í útlöndum?
Skriflegt svar óskast.