Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 940 — 573. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um olíu- og eldsneytisdreifingu.
Frá Ara Trausta Guðmundssyni.
1. Er olíudreifing og önnur eldsneytisdreifing á landi og sjó í samræmi við kröfur um flutningsöryggi, geymslu í héraði miðað við þarfir og þjóðaröryggisstefnu?
2. Hvaða lærdóma má draga af stöðu olíudreifingar og annarrar eldsneytisdreifingar í fárviðrinu í desember 2019?
3. Er fylgst nægilega vel með áhrifum mengunarslysa á umhverfið?