Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1910 — 446. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).
(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga, nr. 110/2000, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Heimilt er að safna lífsýnum vegna þjónusturannsókna og vista lífsýni í lífsýnasafni þjónustusýna til notkunar skv. 9. gr., enda sé þess getið í almennum upplýsingum frá heilbrigðisstarfsmanni eða heilbrigðisstofnun.
b. Í stað orðanna „afturkallað ætlað samþykki sitt fyrir að sýni hans verði vistað“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: krafist þess að lífsýni hans verði ekki vistað.
c. Í stað orðsins „Beiðni“ í 2. málsl. 4. mgr. kemur: Krafa.
d. Í stað orðsins „beiðni“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: kröfu.
e. Í stað orðsins „ósk“ í 4. málsl. 4. mgr. kemur: kröfu.
3. gr.
4. gr.
a. Í stað orðanna „ætlað samþykki“ í 2. mgr. kemur: heimild til að safna lífsýnum og vista í lífsýnasafni þjónustusýna.
b. Í stað orðanna „afturköllun á ætluðu samþykki lífsýnisgjafa“ í 2. mgr. kemur: krafa lífsýnisgjafa.
II. KAFLI
Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, með síðari breytingum.
5. gr.
Embætti landlæknis er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar og lyfjanotkun einstaklinga, í þeim tilgangi að hafa eftirlit með gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustu, lyfjaávísunum og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna sem og til að sinna öðrum lögbundnum skyldum samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
6. gr.
Landlæknir heldur skrá yfir rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu og er honum heimilt að birta upplýsingar úr skránni með það að markmiði að tryggja gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Landlæknir skal tilkynna ráðherra og sjúkratryggingastofnuninni um allar breytingar sem verða á skránni.
7. gr.
Embætti landlæknis er heimilt að birta upplýsingar um nafn, fæðingardag, fæðingarár og starfsleyfi heilbrigðisstarfsmanna, þar á meðal um takmarkanir á starfsleyfum heilbrigðisstarfsmanna, í því skyni að tryggja öryggi og gæði heilbrigðisþjónustu.
8. gr.
Ráðherra skal setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, m.a. um hvaða persónuupplýsingar heimilt sé að vinna og til hvaða sértæku ráðstafana skuli gripið til að vernda grundvallarréttindi og hagsmuni hins skráða.
III. KAFLI
Breyting á sóttvarnalögum, nr. 19/1997, með síðari breytingum.
9. gr.
Sóttvarnalækni er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar og lyfjanotkun einstaklinga, í þeim tilgangi að verjast alvarlegum heilsufarsógnum og til að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
10. gr.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um brottnám líffæra, nr. 16/1991, með síðari breytingum.
11. gr.
Heilbrigðisstofnunum er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar líffæragjafa og líffæraþega, í samvinnu við embætti landlæknis, til að tryggja öryggi og gæði líffæra sem ætluð eru til ígræðslu. Framangreindum aðilum er heimilt að halda sérstaka skrá eða fá aðgang að skrá sem haldin er í framangreindum tilgangi. Áskilið er að uppfyllt séu skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
V. KAFLI
Breyting á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
12. gr.
Lyfjastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um lyfjanotkun einstaklinga, í þeim tilgangi að tryggja nægilegt framboð, gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu sem og til að sinna eftirliti með eftirlitsskyldum aðilum og öðrum skyldum samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um lækningatæki, nr. 16/2001, með síðari breytingum.
13. gr.
Lyfjastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar einstaklinga, til að sinna hlutverki sínu skv. 1. mgr. að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum.
14. gr.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum.
15. gr.
Vinnsla persónuupplýsinga.
16. gr.