108. FUNDUR
mánudaginn 7. júní,
kl. 7.30 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.
Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.
Fyrir Miðflokkinn töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, og í þeirri þriðju Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis.
Fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð töluðu Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Steingrímur J. Sigfússon, 2. þm. Norðausturkjördæmis.
Ræðumenn Pírata voru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Þórarinn Ingi Pétursson, 4. þm. Norðausturkjördæmis.
Fyrir Viðreisn töluðu í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.
[22:00]
Fundi slitið kl. 22:00.
---------------