Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 755 — 439. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um hlutfall starfa utan ráðuneytis vegna COVID-19-faraldursins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt hlutfall starfsmanna ráðuneytisins hefur sinnt störfum sínum utan ráðuneytisins að hluta eða öllu leyti vegna COVID-19-faraldursins?
Hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu hafa allir starfsmenn sinnt störfum sínum að hluta til utan ráðuneytisins vegna áhrifa COVID-19-faraldursins.