Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 883 — 525. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um átakið Nám er tækifæri.
Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.
1. Hversu margir atvinnuleitendur hófu nám um áramótin í gegnum átakið Nám er tækifæri?
2. Um hvers konar nám sóttu atvinnuleitendur og í hvaða skóla, sundurliðað eftir landsvæðum?
3. Hvaða fjármunir hafa fylgt inn í hvaða skóla með átakinu?
Skriflegt svar óskast.