Ferill 457. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1014 — 457. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum).
(Eftir 2. umræðu, 11. mars.)
1. gr.
Við 3. mgr. 3. gr. laganna bætist: nema þegar um er að ræða klínískar lyfjarannsóknir á mönnum, án bakhjarls, samkvæmt staðfestingu viðkomandi heilbrigðisstofnunar.
2. gr.
Á eftir orðinu „sjúkdómsmeðferð“ í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: nema þegar um er að ræða klínískar lyfjarannsóknir á mönnum, án bakhjarls, samkvæmt staðfestingu viðkomandi heilbrigðisstofnunar.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.