Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 295, 152. löggjafarþing 189. mál: kosningalög (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga).
Lög nr. 137 30. desember 2021.
Þrátt fyrir ákvæði 7. tölul. 2. mgr. 22. gr., 143. gr. og 3. tölul. 144. gr. skulu lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lög um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, halda gildi sínu við atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga á grundvelli 38. gr., 107. gr. og 119. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sem fara fram fyrir 14. maí 2022. Fer um framkvæmd þeirra atkvæðagreiðslna eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eftir því sem við getur átt.
Þingskjal 295, 152. löggjafarþing 189. mál: kosningalög (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga).
Lög nr. 137 30. desember 2021.
Lög um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga).
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 7. tölul. 2. mgr. 22. gr., 143. gr. og 3. tölul. 144. gr. skulu lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lög um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, halda gildi sínu við atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga á grundvelli 38. gr., 107. gr. og 119. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sem fara fram fyrir 14. maí 2022. Fer um framkvæmd þeirra atkvæðagreiðslna eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eftir því sem við getur átt.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 28. desember 2021.