Ferill 467. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 674  —  467. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um uppflettingu í fasteignaskrá.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Stendur til að viðhalda þeirri gjaldskrá sem var í gildi hjá Þjóðskrá Íslands eftir að fasteignaskrá verður flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar?
     2.      Hver er stefna ráðherra varðandi gjaldtöku fyrir uppflettingu í opinberum gagnasöfnum?
     3.      Telur ráðherra að núverandi gjaldskrá sé hófleg?