Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 277  —  274. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um eflingu landvörslu.


Flm.: Jódís Skúladóttir.


    Alþingi ályktar að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að hlutast til um að gerð verði markviss áætlun um eflingu landvörslu. Sérstök áhersla verði lögð á fjölgun starfa og heilsársstöðugilda í landvörslu með auknu fjármagni. Við áætlunargerðina verði skoðað hvort þörf sé á endurskipulagningu verkefna í landvörslu.

Greinargerð.

    Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með náttúruverndarsvæðum samkvæmt lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, en landverðir starfa, skv. 80. gr. sömu laga, í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum víðs vegar um landið, svo sem innan þjóðgarðsins á Þingvöllum og Vatnajökulsþjóðgarðs.
    Landverðir annast daglegan rekstur og umsjón í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlanir, sinna fræðslu og upplýsingagjöf, sinna eftirliti á náttúruverndarsvæðum ásamt því að taka á móti gestum í gestastofum.
    Störf landvarða eru margbreytileg en það ræðst meðal annars af fjölbreyttri náttúru, ólíkum fjölda og samsetningu ferðamanna og mismunandi aðstæðum á svæðunum. Mikil fjölgun ferðamanna undanfarin ár hefur í för með sér aukin verkefni og víða er ágangur á viðkvæm svæði kominn að þolmörkum. Landverðir skipa lykilhlutverk í umsjón og eftirliti með svæðum en einnig fræðslu og upplýsingagjöf til fólks.
    Utanvegaakstur er vandamál í náttúruvernd sem hefur gríðarleg og oft óafturkræf áhrif á viðkvæma náttúru. Einna áhrifaríkast hefur verið að nota forvirkar aðferðir, nýta landverði til að upplýsa fólk og reyna þannig að hafa áhrif og koma í veg fyrir skemmdarverk sem oft eru framkvæmd af gáleysi eða að fólk áttar sig ekki á reglunum og afleiðingum sem brot á þeim hafa. Þessi aðferð hefur borið góðan árangur á ýmsum svæðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs, til að mynda við Kreppubrú á norðurhálendinu þar sem vegalandvarsla hefur verið til staðar, sem og í samstarfi Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs að Fjallabaki. Þannig hefur dregið úr utanvegaakstri á svæðunum þrátt fyrir mikla fjölgun ferðamanna á undanförnum árum. Vegalandvarsla, þar sem gestir eru boðnir velkomnir á svæðið af landverði og upplýstir um ástand vega og þjónustu, hefur tvímælalaust áhrif út fyrir hlutaðeigandi svæði.
    Til þess að standa vörð um íslenska náttúru, eina af okkar mikilvægu auðlindum, er ljóst að efla verður landvörslu á markvissan hátt og fjölga landvörðum bæði á háannatíma sem og á heilsársgrundvelli.