Ferill 649. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1019 — 649. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um markmið hæfniviðmiða í skólaíþróttum.
Frá Indriða Inga Stefánssyni.
1. Telur ráðherra hæfniviðmið aðalnámskrár í skólaíþróttum varðandi líkamlega getu vera réttlætanleg í ljósi ólíks líkamlegs atgervis nemenda og náttúrulegra eiginleika þeirra?
2. Hefur farið fram eða stendur yfir vinna á vegum ráðuneytisins um að endurskoða markmið íþróttakennslu í skólum með tilliti til ólíkrar samsetningar nemendahópa?
Skriflegt svar óskast.