Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 1971–72.
Þskj. 589  —  12. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um samgöngumál Vestmanneyinga.



    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa 5 manna nefnd, er gera skal tillögu um það, með hverjum hætti samgöngur við Vestmannaeyjar verði bezt tryggðar. Skulu tveir nefndarmenn tilnefndir af bæjarstjórn Vestmannaeyja, einn af Skipaútgerð ríkisins, einn af flugmálastjórn og einn af samgönguráðuneytinu, og skal hann vera formaður nefndarinnar.
    Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.


Samþykkt á Alþingi 18. apríl 1972.