22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5202 í B-deild Alþingistíðinda. (4576)

16. mál, beinar greiðslur til bænda

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég hef áður í umr. um þetta mál lýst því yfir, að ég tel hugmyndina, sem að baki þessari till. liggur, góðra gjalda verða. Hins vegar hef ég sagt að á till. í því formi sem hún er nú, væru ýmsir tæknilegir gallar og þess vegna mun ég sitja hjá.