02.04.1981
Sameinað þing: 69. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3375 í B-deild Alþingistíðinda. (3461)
9. mál, iðnaður á Vesturlandi
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég þakka hv. atvmn. afgreiðslu málsins sem er mikilvægt að mati okkar flm., og ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. taki þál. þessa til jákvæðrar meðferðar nú þegar.