07.04.1981
Efri deild: 73. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3472 í B-deild Alþingistíðinda. (3528)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Í meðferð nefndarinnar á málefnum Bjargráðasjóðs kom fram að enn liggja ekki fyrir neinar heilsteyptar greinargerðir um fjárþörf sjóðsins á þessu ári vegna þeirra miklu óveðurstjóna sem hér hafa orðið. Málefni sjóðsins og fjárhagsfyrirgreiðsla vegna þeirra tjóna verða tekin fyrir þegar þau gögn liggja fyrir. Á þessu stigi er því ekki tímabært að breyta fyrri ákvörðunum vegna fjárhagsstöðu Bjargráðasjóðs og segi ég því já.