08.04.1981
Efri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3527 í B-deild Alþingistíðinda. (3560)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir þann stuðning sem hann hefur sýnt þessu nauðsynjamáli og reyndar fleiri hæstv. ráðh. sem það hafa gert. Eftir þá yfirlýsingu, sem hæstv. iðnrh. gaf hér um að hann muni beita sér fyrir að tryggja nauðsynlegt fjármagn þegar þar að kemur, sé ég ekki ástæðu til að til atkvgr. komi um þessa till. og dreg hana því til baka.