22.05.1981
Efri deild: 118. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4864 í B-deild Alþingistíðinda. (5152)

281. mál, lífeyrissjóður sjómanna

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Nefndin hefur rætt þetta frv. í þeim búningi, sem það barst okkur frá Nd., en hún gerði ýmsar breytingar á frv. í samráði við þá aðila sem það snertir aðallega. Leggjum við til að frv. verði hér samþykkt í þeim búningi sem Nd. gekk frá því.