27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2549 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)

263. mál, aðstoð við foreldra veikra barna

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Ég er ekki sammála hæstv. ráðh. Mér finnst þessi ítrekun hv. 3. landsk. þm. koma í mjög eðlilegu samhengi við þessa umræðu.