131. löggjafarþing — 72. fundur, 10. feb. 2005.
Staða útflutnings- og samkeppnisgreina.
[13:59]
Forseti (Halldór Blöndal):
Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Í fyrstu umferð talar málshefjandi og ráðherra og hafa 8 mínútur og enn fremur talsmenn annarra flokka sem hafa 5 mínútur. Í annarri og þriðju umferð talar einn frá hverjum flokki og hafa 3 mínútur. Í lok umræðunnar hafa málshefjandi og ráðherra 3 mínútur hvor um sig.