135. löggjafarþing — 38. fundur, 6. des. 2007.
fjáraukalög 2007.
103. mál
Herra forseti. Hér fer fram lokaatkvæðagreiðsla um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2007. Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs lýsum allri ábyrgð á stjórnarmeirihlutann og ríkisstjórnina vegna frumvarpsins og þess sem þar er. Við sitjum því hjá við lokaafgreiðslu þess.