136. löggjafarþing — 32. fundur, 20. nóv. 2008.
fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
161. mál
Hæstv. forseti. Ég velti því fyrir mér, eftir ræðu hv. þm. Helgu Sigrúnar Harðardóttur, hvort hún er með eða á móti því þingmáli sem hér liggur fyrir. Það lá engan veginn ljóst fyrir og væri gott ef hún vildi nýta tækifærið hér í andsvörum til að upplýsa um það hver afstaða hennar er til þess máls sem við ræðum.