137. löggjafarþing — 29. fundur, 29. júní 2009.
útlánareglur nýju ríkisbankanna.
Hæstv. forseti. Ég þakka þetta svar sem er á margan hátt athyglisvert. Mörgum er mjög í mun að vita um framtíð íslenskra viðskiptabanka, í hverra höndum þeir verða þegar fram líða stundir. Mig langar að vita hver sýn hæstv. viðskiptaráðherra er í þeim efnum og hvort einhverjir, t.d. útlendir fjárfestar, hafa sýnt áhuga á þessu verkefni.