138. löggjafarþing — 36. fundur, 2. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Vegna spurninga sem beint hefur verið til forseta vill forseti geta þess að hún mun funda með forsætisnefnd á morgun og sömuleiðis með formönnum þingflokka á morgun. Varðandi það hversu lengi verður haldið áfram með þennan fund, þá sér forseti að 13 ræðumenn eru enn á mælendaskrá og hyggst forseti freista þess að halda fundi áfram þar til mælendaskráin hefur verið tæmd og umræðu lokið.