140. löggjafarþing — 29. fundur, 30. nóv. 2011.
fjárlög 2012.
1. mál
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur og ég vil sérstaklega fagna 25 millj. kr. framlagi sem er eyrnamerkt til að ljúka fornleifarannsóknum á Alþingisreitnum strax næsta sumar því ella er hætt við að þær muni eyðileggjast.