140. löggjafarþing — 58. fundur, 16. feb. 2012.
dómur Hæstaréttar um gjaldeyrislán, munnleg skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra.
Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Ráðherra hefur tólf mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en flokkur ráðherra hafa sjö mínútur fyrir talsmenn í fyrstu umferð. Í annarri og þriðju umferð hefur hver þingflokkur fjórar mínútur. Ráðherra hefur þrjár mínútur í lok umræðunnar.