140. löggjafarþing — 116. fundur,  9. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[03:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Einar K. Guðfinnsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að tala örstutt núna. Það hittist þannig á að þegar ég fór út til að fylgjast með þessum fundi stóð ég næst þeim litla hópi sem var með háreysti til að reyna að kæfa niður ræðurnar sem haldnar voru hér fyrir utan. Ég get staðfest það að ég heyrði engan kalla að þeir væru mjög hrifnir af þessum frumvörpum ríkisstjórnarinnar. Þetta voru hróp og köll gegn LÍÚ en ég leit ekki þannig á að í því fælist einhver sérstök stuðningsyfirlýsing við ríkisstjórnina.