leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa útskýringu. Ég veit að hv. þingmaður er vel reyndur í þessum hugtökum og auðvitað eiga þeir sem geta greitt af skuldum sínum að gera það.
Þegar hann spyr um mín börn, ég á þrjú, þá bregður manni í brún. Það virðist vera hin frábæra íslenska leið að fleyta vanda, hvort sem er kynslóðar hv. þingmanns eða minnar, fram í tímann, fresta honum. Ég þarf svo kannski að horfa upp á dætur mínar standa í pontu og fara með þessa sömu ræðu aftur og aftur.