143. löggjafarþing — 92. fundur, 8. apr. 2014.
leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
485. mál
Virðulegi forseti. Ég vil fá að nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir málefnaleg svör og málefnalega gagnrýni. Orð hans í þessari pontu, um þetta frumvarp, hafa verið mjög upplýsandi fyrir mig og hafa dýpkað skilning minn og í raun valdið mér enn meiri áhyggjum en ég hafði áður.