143. löggjafarþing — 92. fundur, 8. apr. 2014.
leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
485. mál
Forseti. Ég þakka ræðuna. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort ekki hafi staðið til að finna leiðir til að afnema verðtrygginguna og hvort í þessu frumvarpi og frumvarpinu sem flutt var á undan sé að finna leið út úr verðtryggingunni. Er það stefna núverandi ríkisstjórnar að afnema verðtrygginguna eða einungis að breyta verðtryggingunni á þann veg að það sé eingöngu hægt að fá lán til 20 ára?