143. löggjafarþing — 117. fundur, 15. maí 2014.
veiting ríkisborgararéttar.
602. mál
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Undirnefnd í allsherjar- og menntamálanefnd yfirfór þær umsóknir sem bárust. Hér liggur fyrir tillaga frá allsherjar- og menntamálanefnd í heild um 23 einstaklinga sem lagt er til að öðlist ríkisborgararétt nú í vor. Við vonumst til þess að þetta frumvarp til laga frá nefndinni verði samþykkt.