144. löggjafarþing — 19. fundur, 15. okt. 2014.
verslun með áfengi og tóbak o.fl.
17. mál
Virðulegi forseti. Ég ítreka spurningu mína um lengd þingfundar. Hversu lengi á þingfundur að standa í kvöld í ljósi þeirra óska sem hér hafa komið fram? Það er málinu ekki til góðs að því sé haldið áfram meðan hæstv. heilbrigðisráðherra er ekki hér í húsi. Ég óska eftir því að hæstv. forseti svari því hversu lengi þingfundur á að standa.