144. löggjafarþing — 142. fundur, 1. júlí 2015.
veiðigjöld.
692. mál
Það var ætlun forseta að reyna að freista þess að afgreiða þau mál sem liggja fyrir á þessari dagskrá. Það er ljóst mál að það verður ekki unnt vegna þess að um það hafði verið samið að gefa hér rými fyrir þingflokksfundi og sömuleiðis fundi í efnahags- og viðskiptanefnd. Verður því þessari umræðu frestað og út af dagskrá verða tekin 2.–10. dagskrármál.