145. löggjafarþing — 41. fundur, 26. nóv. 2015.
tilkynning um skrifleg svör.
Borist hefur bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 371, um eftirfylgni áætlunar um aðgerðir gegn mansali, frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 369, um samkomulag stjórnvalda og slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja, frá Birni Val Gíslasyni.